https://www.youtube.com/watch?v=zrMED4_OdkA&app=desktop
Umhverfisvernd án öfga
Fyrst kom Björn Lomborg með sína frábæru bók, Hið sanna ástand heimsins, árið 2000, þar sem hann tók fyrir og tók fyrir málflutning heimsendaspámannanna. Síðan kom Matt Ridley á síðasta ári með bókina Heimur batnandi fer, sem ekki var síðri. Þar fór hann yfir framfarirnar, sem orðið hafa í krafti frelsisins. Nú hefur Rögnvaldur Hannesson prófessor gefið ...
Þarf ríkið að sinna þessu ?
Er það vikilega svo að ekki sé hægt að sinna slátrun dýra án eftirlits opinberra starfsmanna? Hvernig má það vera að kjötkraftur, sósur og ýmiss annar pakkamatur verður ekki fluttur inn án eftirlits og uppáskriftar starfsmanna Matvælastofnunar - og það vörur framleiddar í ESB löndum sem sjálf búa við regluverk á sterum. Höldum við virkilega að fyrirtæki á ...
Gaman að ferðast á kostnað annarra
Morgunbl. 28. mars 2015 Hvern langar ekki til San Francisco? Svo ekki sé talað um langa ferð til Kanada? Eða bara stutta til Amsterdam? Og allt „ókeypis". Embættis- og stjórnmálamenn eru duglegir að ferðast á kostnað skattgreiðenda. En hvaða erindi eiga stjórnarmenn Bílastæðasjóðs til San Francisco? Úr frétt Morgunblaðsins í gær um fyrirhugaða ferð fulltrúa Bílastæðasjóðs ...
Góð bók í skóinn
Sjálfsagt er á þessum tíma að vekja aftur athygli á bók sem kom út fyrir skömmu, Heimur batnandi fer (The Rational Optimist) eftir breska metsöluhöfundinn Matt Ridley. Þar lýsir höfundurinn því skýrt og skilmerkilega hvernig maðurinn fór að skera sig út úr öðrum dýrategundum með því að stunda viðskipti. Þannig gátu menn nýtt sér sérhæfinguna og ...
Staðreyndir gegn svartagallsrausi
Bók Matts Ridleys, Heimur batnandi fer (The Rational Optimist), er þörf og skemmtileg bók og góður lestur í skammdeginu. Hún er nauðsynlegt mótvægi við öllu svartagallsrausinu sem dunið hefur á okkur. Ég er ekki sá eini sem er hrifinn af henni. Ragnar Árnason prófessor segir: „Matt Ridley útskýrir framþróun mannkynsins með eignarrétti og viðskiptum og fetar ...
Atvinnurekendur ánægðir í faðmi ríkisins
Kostulegt er að sjá umsögn Félags atvinnurekenda um frumvarp Vilhjálms Árnasonar, og nokkurra annarra þingmanna, sem afnemur einkasölu ríkisins á áfengi. Ætla mætti að Félags atvinnurekenda væri frá sér numið af hrifningu og að stuðningur þess við frumvarpið væri einlægur og eindreginn. En öðru nær; Á frumvarpinu eru alvarlegir annmarkar, sem hafa í för með sér að verði það ...
Rás 2 skotmark hryðjuverkamanna?
Fréttablaðið birtir grein eftir Hermann Stefánsson, rithöfund, sl. þriðjudag þar sem hann mótmælir hugmyndum um sparnað hjá Ríkisútvarpinu. Reyndar gagnrýnir höfundur greinarinnar það sem hann kallar reikningskúnstir, en leysir jafnframt fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins með bráðsnjöllum hætti: Það tekur því ekki að blanda sér í reikningskúnstirnar að öðru leyti en því að nefna að ekkert bendir til annars en að það sé ...
Fer ekki fet fyrir skattgreiðendur …
Margir hafa orðið til að vekja athygli á lítilli frétt í Viðskiptablaðinu frá 30. október. Fjallað er um hugmyndir Kristínar Ástgeirsdóttur um flutning á skrifstofu Jafnréttisstofu á Akureyri. En eins og áður hefur verið fjallað um er leigan á núverandi húsnæði stofnunarinnar óheyrilega dýr. En þegar í ljós kom að fjárframlög til Jafnréttisstofu yrðu lækkkuð sem ...
Skattar hafa áhrif á hegðun
Íslenska ríkið gekk nýlega frá samningi við Silicor Materials um smíð sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Í samningnum er ákvæði um, að fyrirtækið greiði 15% tekjuskatt. Þetta er merkileg frétt, eins og Morgunblaðið benti á í leiðara 2. október. Stjórnirnar 1991–2009 fylgdu markvisst þeirri stefnu að reyna að mynda hér fyrirtækjavænt umhverfi og komu tekjuskatti á fyrirtæki ...
Gott framtak Vilhjálms Árnasonar
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst á komandi þingi leggja fram fumvarp sem heimilar sölu áfengis í öðrum verslunum en Vínbúðum ÁTVR. Löngu er kominn tími til að afnema einokun ÁTVR á sölu áfengis. Best væri auðvitað að leggja niður smásöluverslun ÁTVR með öllu og færa í hendur einkaaðila. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með umræðunni ...
Góðar bækur Uglu
Ég má til með að benda á nokkrar góðar bækur frá Uglu sem hægt er að taka með í sumarleyfið. Ein er Stasiland eftir ástralska rithöfundinn Anna Funder. Hún er um hversdagslífið í Austur-Þýskalandi. Hún hefur verið metsölu- og verðlaunabók um heim allan. Ágætt að benda þessa bók nú þegar Ríkisskattstjóri leggur fram álagningaskrána og sumir ...
Alið á öfund og óánægju
Ríkisskattstjóri leggur fram álagningaskrána á morgun. Hefst nú það árvissa tímabil þar sem landsmenn, sem af því hafa gaman, geta skoðað álagða skatta samborgara sinna og spáð í tekjur þeirra út frá því. Og fjölmiðlar beinlínis gera út á herlegheitin. Af þessu tilefni er í Viðskiptablaðinu í dag viðtal við Hörð Helga Helgason, lögmann, og fyrrum forstjóra Persónuverndar, sem ...
Þokkalegt hjá Illuga Gunnarssyni
Nú hefur Illugi Gunnarsson gefið út hvítbók um framtíðarstefnuna í menntamálum. Þar eru sett tvö markmið. Annað er að auka læsi og móðurmálskunnáttu á grunnskólastigi. Hitt er að auka hlutfall þeirra, sem stunda eitthvert framhaldsnám, styttings náms til lokaprófs og stefnt að því að draga úr brotthvarfi. Þetta virðast skynsamleg markmið. Betra hefði verið að Illugi létti aðeins á ...
Gott efni fyrir ungt frjálshyggjufólk
Frábærlega mikið efni er á Netinu fyrir ungt áhugafólk um frjálshyggju. Tvær góðar heimasíður eru hjá Matt Ridley og Niall Ferguson (sjá líka tengla á blogginu hér). Ridley er dýrafræðidoktor frá Oxford og var lengi vísindaritstjóri Economist, en er nú sjálfstæður rithöfundur og skrifar bækur um vísindi. Hann hélt fyrirlestur hjá Rannsóknarsetri um nýsköpun og hagvöxt (www.rnh.is) og Stofnun stjórnsýslufræða ...